mig dreymdi að ágústa sagði að hún og þórhildur ætluðu að koma í heimsókn til okkar... góð hugmynd!
laugardagur, ágúst 31, 2002
fór ekki í skiptinemapartíið í gærkvöldi, var orðin svo þreytt. stebbi þurfti líka að labba heim frá skólanum því það ganga ekki næturstrætóar þaðan, það hefði ég ekki meikað.
mig dreymdi að ágústa sagði að hún og þórhildur ætluðu að koma í heimsókn til okkar... góð hugmynd!
mig dreymdi að ágústa sagði að hún og þórhildur ætluðu að koma í heimsókn til okkar... góð hugmynd!
föstudagur, ágúst 30, 2002
á miðvikudaginn fórum við í túristaferð með hinum útlendingunum í dtu, bátsferð á sýkjum kaupmannahafnar. mér þótti það mjög skemmtilegt. þegar báturinn sem við biðum eftir kom, var okkur vinkað. þá voru það kiddi og jón eggert sem voru að koma úr siglingu með útlendingunum sem eru með þeim í skóla, cbs. mér þótti mun fallegra fólk í þeirra hóp heldur en okkar... well. um kvöldið fórum við svo á studenterhuset þar sem var skiptinemakvöld, sem mér þótti alveg mjög fyndið. við hittum fullt af ýmist fyndnu eða hlægilegu fólki þar, en mér finnst bæði skemmtilegt. við vorum aðallega með nýju vinunum hans stibba (já, hann er búinn að eignast tvo vini... :-) ), þeim mike frá buffalo, new york, og ítalanum aronne sem er frá florenz. en þarna inni hittum við meðal annars, frakka sem mér þótti mjög hlægilegur því hann talaði ensku með svo rosalega frönskum hreim, sagði s í staðinn fyrir th, somesing í staðinn fyrir something og anysing í staðinn fyrir anything... ég var í hláturskasti. og annan frakka sem var svo stoltur af dönskunni sinni sem hann var búinn að læra á litla dönskunámskeiðinu sem hann var á... jújú, hann kunni "hvad hedder du?" "hvor bor du?", en aronne felldi hann á "kan du spille bordtennis?"... hehe... þurfti ekki mikið til. skemmtilegast var að hitta skotann sam, en hann kenndi okkur að blóta á skosku, mér fannst það geðveikt! "fukkin sssccheit, ðesss bírrr teists læk pessss!". vonandi hitti ég hann í kvöld í skiptinemapartíinu, þá get ég sýnt honum hve vel hann hefur kennt mér að vera ruddi... hann á eftir að springa úr stolti.
hei... gleymdi alltaf að segja frá laugardeginum síðasta þegar ég og rásta tókum númer í karaoke á sam's bar. það var mjög fyndið. eins og þeir sem þekkja mig vel vita, þá er ég mjög lítil söngkvinna, og karaoke er það síðasta. en í danmörku, hvað getur maður ekki gert? við ragnheiður skráðum okkur með pulp-lagið common people og vöktum líka þessa gríðarlegu lukku, baunarnir voru sko 100% sjúkir í okkur... hehehe. það er líka gaman frá því að segja að sólveig og stebbi voru no-show í laginu sínu, sólveigu leið víst ekki mjög vel, og skundaði út eftir dágóða veru á klósetti staðarins... hehehe. við ákváðum líka að fara fljótlega heim, það var bara eitt vandamál... hvar áttum við eiginlega heima? fundum næturstrætó sem fór á lyngby station og tókum svo bara leigubíl þaðan eins og sönnum íslendingum sæmir, ætluðum ekkert að flækja þetta neitt frekar. en við vorum ekki hætt, því þegar við komum á kollegi-ið heyrðum við smá óm af tónlist og kveiktum þá bæði... "kollegi-barinn!". vorum ekki lengi að finna hann. eftir þónokkra veru þar, dönskukennslu og grúpvang við drowning með backstreet boys (mjög fyndið...) fórum við loksins upp að sofa. þegar við vöknuðum var EKKERT til að borða.
er að borða... ein. stebbi fór í e-n lokapartímat í dtu, mér er víst boðið eftir hann. á boðstólnum í dag hjá mér er pasta með rauðri sósu... jú og kál, við keyptum nebblega e-n sterakálhaus um daginn, hann má ekki skemmast. þrátt fyrir að hafa farið á fætur mjög seint, eða um hádegi, þá finnst mér ég vera búin að gera alveg fullt. ég byrjaði á því að fara niður í þvottahús... hmmm... í fyrsta skiptið eftir vikudvöl. alla vega, það er þvottahús í kjallaranum með þvottavélum og þurrkurum og fyrir hvern þvott, þvottaefni og þurrk þarftu að borga með korti sem maður kaupir á bensínstöðinni. ég var eins og algjör illi þegar ég kom þarna niður. ég byrjaði á því að standa með öll skítugu fötin okkar og horfa á hitt fólkið sem var ýmist að setja í þvottavél eða þurrkara til að reyna að læra. en þau voru öll greinilega mjög vön þ.a. mér tókst ekki að nema neitt með þessu áhorfi. þá var bara að prófa sjálf. það tókst ágætlega þangað til ég þurfti í helv... kortavélina. þá var það bara að reyna dönskuna sína... "undskyld, kan du sige mig hvordan jeg skal bruge kortemaskinen, dette er min förste gang her og..." roðni roðn. danska stelpan hjálpaði mér, talaði og talaði, alveg á ógnarhraða, og ég hafði þar með sett í mína fyrstu dönsku þvottavél... jei!! þegar hún var búin færði ég þvottinn okkar í þurrkara og átti gott mót við kortemaskinen í þetta skipti þótti mér, fór svo upp í íbúð. þegar ég kom niður aftur soldið seinna þá var búið að setja minn þvott í körfu úti á miðju gólfi, allur blautur ennþá, og e-s annars þvottur kominn í vélina... öhhhh! þá er sjálfgefið í kortemaskinen 15 mínútur eða e-ð, ég hefði sem sagt þurft að panta 2 eða 3 sinnum það. þ.a. núna er ég að tjilla með blautan þvott allt um kring sem hangir uppi til þerris... jei!
úfffffffffff... ég er rosa leiðinleg... leiðinleg þvottasaga!
alla vega...
það er ekkert lát á góða veðrinu hér. fór út áðan á stuttbuxum og hlýrabol með bók að lesa og það var algjör steik, meikaði ekki meira en korter, fór þá inn. vil samt ekkert vera að kvarta neitt, sól er betra en rok og rigning ;-) eftir áframhaldandi lestur hér inni fór ég í sturtu og eldaði svo kvöldmat... dúleg, ha?

miðvikudagur, ágúst 28, 2002
ég fór að túristast í dag um miðbæ kaupmannahafnar... ein. það var mjög skemmtilegt. labbaði strikið til enda, labbaði aðra götu sem heitir e-ð köbmagergade... tralla... hún var rosa skemmtileg, eiginlega skemmtilegri en strikið. þar fann ég erótíska safnið, ætlaði að kíkja þar inn en það kostaði 79 dkr, fannst það fulldýrt, hætti því við. við þá götu var líka rundetårn og hann labbaði ég upp, fannst það pínu erfitt. akkuru er ekki selt vatn þarna uppi??? well well. mjög flott að horfa yfir kaupmannhöfn þaðan, en ég rúllaði mér fljótlega niður og labbaði meira. fann alveg fullt af skemmtilegum búðum, mun skemmtilegri en på ströget, er meira að segja komin með mína uppáhaldsskóbúð... jei :-)
lenti í mjög fyndnu þegar ég stoppaði í bjór á leiðinni heim. fann einn stól við borð á sona útikaffihúsi, var samt ekki alveg viss hvort hann væri laus eða ekki. ég labbaði að borðinu, sem var ansi þétt við þrjá unga menn og borðið þeirra, brosti breytt og sagði "er den optaget?". ungi maðurinn næst mér brosti og sagði "jú ken sit hír, ónlý bjútífúl blond görls ken sit hír"... ég svaraði strax "eruð þið íslenskir?". "já, hvernig vissiru?" vá, ekkert smá augljóst! man... alveg fyndið. þá voru þetta þeir þorvaldur og friðrik úr skagafirðinum og hann gunnsteinn frá fossi tralla e-ð. þeir voru allir komnir með ba-gráðuna sína frá landbúnaðarháskólanum á hvanneyri og voru að hefja nám í e-jum sona bændaskóla hér til þess að fá master. hehehe... fyndið að vera master í því að vera bóndi... eða e-ð. þeir voru samt ekkert mjög skemmtilegir, pínu lúðar. eitt fannst mér reyndar mjög fyndið, þegar þorvaldur var að kveðja nýju bandarísku vini sína (sem hann hafði eignast þarna á kaffihúsinu), spurði hann hvaðan þeir væru og þeir voru frá atlanta. "jess, læk mattlokk!" man! hver man svona? ég var sko í hláturskasti.
leiðindafréttir með böddímálið okkar... þeir eru allir búnir! leiðinlegt! ingó, stebbi, kiddi og jón eggert eru allir með sinn hver... og við engan. öhhh... svindl!
við erum samt búin að kynnast smá fólki hérna á kollegi-inu, t.d. honum jesper og færeyingunum brynhild og bardi, svo kynntumst við líka íslendingunum óskari og jenný (minnir mig að hún heiti) en þau fluttu út í dag... hmmmm... :-(
annars er bara allt í gúddí... nema það að msn-ið er ekki komið inn hjá mér og ég sakna þess soldið að geta ekki spjallað við vini mína þar.
hej, hej!

mánudagur, ágúst 26, 2002
alllllúúúúú köben!
loksins komin með nettenginguna mína.
við erum á leiðinni út í búð að kaupa e-ð í matinn og soleiðis. í gær þegar við vöknuðum upplifðum við alveg hræðilegt. þið vitið hvernig það er þegar maður er ógislega svangur og langar í e-ð gott og segir við mömmu "það er ekkert til að borða"... "jújú, þú getur fengið þér brauð, það er til ostur, skinka, bananar, cocoa puffs og afgangur síðan í kvöldmatnum í gær" segir hún alltaf, en það er samt aldrei nógu gott. í gær gátum við stebbi sagt með 100% sanni "það er ekkert til að borða!". þetta var alveg verst. vorum á rosa djammi kvöldið áður og vöknuðum í gír eftir því. við gátum fengið okkur vatn úr krananum, salt með joði, edik eða sykur, sem íbúarnir á undan okkur höfðu skilið eftir. jei!
við gátum svo dröslað okkur út á bensínstöð og keypt frosna pizzu, jógúrt og brauð. ömmmmm... besta pizza sem ég hef fengið á ævinni, líklega því ég var svo über svöng. hún var nebblega eiginlega frekar ógó, gular baunir og e-ð sona drasl.
well... farin út í búð.

föstudagur, ágúst 23, 2002
búin að vera á þeytingi alla vikuna, mínir uppáhalds staðir hafa verið bankinn, skólinn og hinar ýmsu verslanir. en ég held að það sé bara allt klárt fyrir utanförina.
flugið mitt heitir fi212 og á að fara klukkan 16:10, en viti menn... það er örlítil seinkun, eða rétt um 7 klukkutímar! týpískt, finnst ykkur ekki? það er sem sagt áætlað að við förum í loftið um klukkan 11 í kvöld. ég er því bara að tjillja heima með töskunum mínum, fjör.
upphaflega planið var að lenda kl. 9 í kvöld og taka þá strætó/lest að sækja lykilinn okkar og svo beint á kollegiið og koma okkur fyrir. en við lendum ekki fyrr en um miðja nótt þegar flestar samgöngur á landi eru niðri og lendum þannig í smá bobba. en þar sem þetta er það mjög mjög seint þá er eiginlega bara næstum því kominn dagur og strætó því aftur farinn að ganga. heppin? já sei sei.
mamma ofurpakkari hjálpaði mér með farangurinn í gærkvöldi. við sprengdum næstum því stóra ferðatösku, hún vigtaðist 28 kíló, en það má víst bara fljúga með 20 kíló, og það komst meira að segja ekki allt í þessa stóru tösku, þrátt fyrir 3 minnka-farangur-yfirferðir. þ.a. það leit út fyrir að ég væri að fara að ferðast með ca. 40 kíló, eða tvöfalt það sem má ferðast með og því borga milljónir í yfirvigt, eða a.m.k. mjög mikið, hehe. ákveðið var að setja minna nauðsynlegt dót í aðra tösku sem verður send á eftir okkur. ég skil þetta samt ekki. ég er sko bara með það allra nauðsynlegasta, alveg satt. ég tók reyndar soldið mikið af skóm... en samt bara það allra nauðsynlegasta af hinu. skil'etta ekki! en well.
hvað á ég af mér að gera í dag, ég er alveg reddí. vill einhver vera memm?

föstudagur, ágúst 16, 2002
ætli það sé hægt að virkja slímmyndun ef hún er í mjög miklu magni [as in hor]? ég væri a.m.k. mjög góður kandídat í þá tilraun.
síðasti dagurinn í vinnunni í dag... jei. mér líður samt frekar... nei, mjög illa. mér er illt í hálsinu, höfðinu, eyrunum (mér verður sko aldrei illt í eyrunum) og með mesta kvef heims. fólk sem ég tala við í símann er farið að hlægja að mér, "ertu soldið kvefuð, vinan?". lenti í mesta n-og-m-samtali áðan, sem væri sko alltílæi... ef ég gæti sagt m og n!!! maðurinn fékk alveg hláturskast. ég reyni að forðast þessi m-og-n-orð eins og ég get. en lítum á björtu hliðarnar, ég vinn hjá "s24, rut", en ekki "netbankinn, rut" og ég heiti rut en ekki n-eða-m-eitthvað.
með réttu ætti ég að vera heima í dag, og ef ekki væri fyrir kökuna sem ég bakaði í gær (maður þarf alltaf að koma með köku þegar maður hættir) og þetta væri ekki síðasti dagurinn minn, þá væri ég heima núna, absólútlí. en með verkjalyf í annari og snítupappír í hinni reyni ég að þrauka þetta... kommon, þetta er nú síðasti dagurinn minn... jeeeeeeee (",)

fimmtudagur, ágúst 15, 2002
við fljúgum út á föstudaginn 23. ágúst kl. 16:10 og lendum því e-n tímann á föstudagskvöldinu í danmörku. þetta skapar smá problem þar sem við getum aðeins nálgast lykilinn að íbúðinni okkar á skrifstofutíma. þ.a. við verðum að öllum líkindum heimilislaus yfir helgina. skrítið að það skuli ekki vera hægt að fá lykilinn sendan í pósti... vell. gæinn á kollegi-inu ráðlagði okkur að sækja um "buddy" og hann gæti þá jafnvel sótt lykilinn fyrir okkur. þetta finnst mér með eindæmum sniðugt. ekki nóg með það að hann gæti sótt lykilinn fyrir okkur og komið þannig í veg fyrir helgarheimilisleysi, heldur yrði hann okkar buddy alla önnina... heheheh. við sækjum sem sagt um e-n danskan dtu-nema til að vera buddy-inn okkar. alveg brill!
hvernig fólk bíður sig fram í að vera svona buddy? hmmmm... mér dettur bara í hug svona nördar sem vantar vin, e-n til að tala við... um allt... endalaust! það væri alveg fyndið að fá e-n soleiðis sem yrði svo sjúkur í okkur... svona cable-guy-gæi... hehehehehe.
en ég er alveg sjúk í að sækja um svona, kannski eldar hann og tekur til... hver veit.

ég á bara eftir að vinna 2 daga í vinnunni minni... jei! í dag til kl. 21 og á morgun til 17, þá er ég bara búin. ómægot hvað það verður bjútífúl. það verður samt alveg nóg að stússast sko, lín-dót, pakka, heimsækja ömmu, sofa út... bissí krissí. get eigi beðið.
þriðjudagur, ágúst 13, 2002
forseti Lettlands frú Vaira- Vike Freiberga og herra ólafur ragnar grímsson eru nú í kringlunni. ég sá þau keyra hingað í fylgd 7 mótorhjólalögga, 3 löggubíla, lífvarðabíls og 2 benz-bíla. svo voru þau bara skilin eftir. hvað ætli þau séu að gera í kringlunni eiginlega? örugglega á stjörnutorgi að gúffa í sig makkara. hehehe.
mánudagur, ágúst 12, 2002
jei.. snorri er æði! hann ætlar að lána mér vélbúnaðar-bókina sína, svo á ég reiknirita-bókina síðan á síðustu önn. vantar þá bara tvær bækur, hugbúnaðarfræði-bók og hönnun-og-smíði-hugbúnaðar-bók. ég er a.m.k. hálfnuð með bókainnkaup... jei!
jæja... tók síðasta niðri-í-bæ-djamm mitt í soldið langan tíma um helgina. þetta var nebblega næstsíðasta helgin mín á íslandi næstu 3 mánuðina, næstu helgi verður fagnað úti á landi.
ég get ekki sagt annað en ég hafi skemmt mér alveg brill. ég held ég hafi farið 3 sinnum í bæinn í allt sumar, samt búin að skemmta mér alveg helling, bara búin að vera dugleg að fara út á land og alls konar soleiðis. það er örugglega þessum litla fjölda bæjarferða að "kenna" að það var svona gaman um helgina. mér fannst ég ekki vera að endurtaka sama hlutinn í billjónasta skiptið eins og svo oft er þegar maður fer í bæinn, maður er nebblega alltaf þar.
á föstudaginn elduðum við stebbi spaghetti handa okkur og steinari. það var helst til of mikil sítróna í því, þannig að við urðum öll mjög súr... hehehe... undo. eftir partí með steinari og félögum hans skunduðum við á oro í austurstrætinu (þar sem rex var) og drukkum þar með halli, barða, óttari, berki, sigga zoom og ísgerði, í boði halls... takk hallur. fórum svo á hverfisbarinn þar sem var svaka stuð. bragðið "höztl og ditz" virkaði tvisvar, þ.e. að höstla drykk og ditsa svo... hehehe, ég var mjög sátt við það... var samt engin tík eða neitt.. ég og stebbi fórum hamförum á dansgólfinu, annað eins hefur varla sést. fórum svo heim með dýrasta taxa heims, 2.380,- krónur upp í breiðholt, man! stoppuðum á hróa og sóttum pizzu, en vegna mikillar ölvunar gátum við aðeins borðað sitthvora sneiðina, trúiði þessu! ég sem er svo mikil pizzukona! en það var bara betra þegar við vöknuðum daginn eftir, öömmmmm.
á laugardaginn fór ég í "óvænt-afmælispartí" hjá mariko. mjög fyndið... þegar hún labbaði inn í salinn kölluðu allir "óvaaaaííííínt!" með áherslu á a-ið og í-ið, "óvænt!", í staðinn fyrir "surpræs!". alltaf sniðugt þegar svona útlensku er snúið yfir á okkar ástkæra tungumál. en veislan var mjög flott, árni var greinilega ekkert að spara. þarna var drukkið, etið og dansað til kl. 3, allt í boði. það er alltaf kúl.
vegna taps í keppninni "þægilegustu skórnir" (en ég var pæja) og ölvunar (þetta fría áfengi...) þurfti ég ég að fara heim. stoppaði samt aftur í pizzu... hehehe, jeeeeeee.
í gær afrekaði ég svo heljarinnar tiltekt í herberginu mínu og eina þvottavél, svona til að gleðja mömmu. sá svo myndina minority report. mér fannst hún alveg geðveik! mæli eindregið með henni, mjög flott framtíðarmynd.
ég er líka ógnarþreytt núna. úfffffffff...
en helgin var góð :-)

föstudagur, ágúst 09, 2002
ok... var soldið lengi að þessu, var orðin frekar pirr, en það tókst... jei!
fimmtudagur, ágúst 08, 2002
jei... ég komst inn á gamla msn-accountinn minn! jei. fullt af fólki sem ég mundi ekki e-mailið hjá, eins og t.d. skólafélagar. þá get ég kannski vælt í þeim um hjálp þegar ég verð ein og bjargarlaus í danmörku. ég titra smá... :-)
búið er að panta flug. förum í loftið þann 23. ágúst kl. 16:10, lendum kl. 21:10. jei! það eru einungis 2 vikur þangað til. ég á aðeins eftir að vinna rétt rúma viku. jei! ég hlakka svooooo til.
jæja... örlítið um þjóðhátíð.
komst frá vestmannaeyjum á þriðjudagsmorguninn kl. 8.
helgin var alveg frábær. hvenær hefur þjóðhátíð klikkað? aldrei. það var ýkt gaman og ýkt blautt. minnir að það hafi verið þokkalegt veður á föstudeginum, fór a.m.k. pollabuxnalaus niður í dal... fór reyndar mjög fljótlega í þær... og ég var ekki blaut í gegn þegar ég kom heim um nóttina. laugardagurinn var alveg massablautur, varð alveg blaut í gegn. á sunnudeginum var ofsarok. brekkan hafði fokið í burtu, árni stóð varla í fæturnar og mækinn hans fauk um koll. ég kyssti hreim... jei! :-s
ég og stebbi töltum þurr heim, en þar hittum við einmitt fyrr pál rósinkrans sem ætlaði að sofa í íbúðinni fyrir ofan okkur. við hjálpuðum honum að brjótast inn... með tjaldhæl. það gekk nú ekki betur en svo að við eyðilögðum hurðina og hælinn... jæja.
annars var þjóðhátíðin bara yndisleg... yndislega blaut.
hetjur þjóðhátíðar:
hrafnhildur fyrir að fara á sína fyrstu þjóðhátíð.
elli tomm fyrir átfittið á laugardaginn.
kjartan helga fyrir að hafa farið á sína 16. þjóðhátíð... í röð!
stulli frændi fyrir frábæra gestrisni og alveg brill kjúkling.
hreimur fyrir að kyssa mig... eða leyfa mér að kyssa sig... á handarbakið... heheheheheh... well well.
mamma og pabbi fyrir að fara í fyrsta skiptið á þjóðhátíð síðan 1979.
finnbogi fyrir brandarann um lögregluna í hafnarfirði og að bjóða mömmu að bjúa hjá sér.
konan sem bauð sig fram til þess að syngja "ég elska alla" með hljómum. hún hafði svo yndisfagra rödd... áááiiii...
allir pylsuafgreiðslumenn og konur. bestu pylsur heims!

föstudagur, ágúst 02, 2002
fimmtudagur, ágúst 01, 2002
komst að því í gær að þungatökmörkun í fluginu er 15 kg á mann. ok... hvort á ég að taka með mér bjór eða hlý föt? hmmmm... bjór... hlý föt... bjór... hlý föt.
rúna frænka er yndisleg og býr svo heppilega, eða alveg rétt hjá ríkinu í vestmannaeyjum. hún ætlar í ríkið fyrir mig og stebba og kaupa fullt af bjór, jei! þ.a. ég get tekið með mér hlý föt... og kannski eina flatköku.
ég frétti frá rúnu frænku í gær að það væri komið fullt af litlum tjöldum niður í dal. jeremías! ætlar fólk að vera þarna í viku eða? eins og vestmannaeyjar er yndislegar, en vika í tjaldi! ég held ekki.
eiríkur már og co. fóru í morgun, ætli þeir séu ekki bara nýkomnir eða rétt ókomnir. eiríkur er líka yndislegur og ætlar að sækja okkur á flugvöllinn á morgun. jei!
ég er orðin svo spennt!