Laugardagur, 10 September, 2005
 |
|
Carlos
|
Tvö kvöld, tvær myndir, tveir staðir, tveir matar og fullt af fólki. Fyrra kvöldið var haldið heima hjá Möggu og Garðari. Þá var Garðar ennþá með hár og Magga ekki orðin léttari. Dalalíf fékk að syngja í fermingarpeningavideotækinu hans Garðars. Vonandi verður það síðasta skiptið sem videotæki verður notað vegna takmarkaðra hljóð og myndgæða. Myndbandaklúbburinn Sódóma hefur líka fjárfest í öllum Lífs myndunum á nýútkomnum DVD. Magga eldaði örugglega eitthvað fínt eða hvort við komum með eitthvað sjálf (það er allt of langt síðan, hefði átt að skrifa eitthvað um þetta fyrr) Já, það má ekki geyma því að Bylgja mætti of seint ;p.
Aðalfundurinn var haldinn í Fagrahjalla Kópavogi. Venjuleg aðalfundastörf s.s. ný stjórn kosin, raðað í nefndir og önnur mál tekin fyrir. Mikið fjaðrafok átti sér stað með að ákveða mynd þar sem nefndin sem átti að ákveða það hafði ekki verið skipuð ennþá. Það voru uppi tillögur eins og Löggulíf, Sódóma, gömul áramótaskaup en það sem vakti mesta hylli var að lokum Karlakórinn Hekla. Werner bræðurnir, Gunnar kórstjóri, Magga og allir hinir héldu uppi stemningu sem má helst líkja við David Hasselhoff, Pavarotti, Carlo("hann er nú meiri kallin") í stuttbuxum stadda í partýi hjá sígaunakonu að syngja "Brennið þið vitar", drekka bjór og borða mölkúlur.
Posted by: Jakobar//20:20 -
Laugardagur, 16 apríl, 2005
Tveir nýjir meðlimir hafa bæst í hópin og vill ég byrja því að bjóða þær velkomnar í hópin. Um er að ræða ástkonu mína hana Andreu sem fær inngöngu sem heiðursmeðlimur vegna óvenju mikillar fegurðar og Bylju sem var sú fyrsta sem þurfti að þreyta inntökupróf. Eftir að hafa farið yfir umsókn og útlit hennar var ekki erfitt að veita henni inngöngu. En eins og allir vita þarf að skila inn umsókn, ná intökuprófinu og síðast en mikilvægast að vera fallegur.
Posted by: Jakobar//23:50 -
Fostudagur, 08 apríl, 2005
 |
Gossið |
Það þurfti ekkert minna en plasmaskjá til að halda upp stemningunni á þriðja myndbandakvöldinu sem haldið var í gær, fimmtudaginn 7 apríl eða á 9 mánaða afmæli myndabandaklúbbsins Sódóma. Nýjast meðlimur klúbbsins lét sjá sig í fyrsta skiptið og bíð ég hér með Andreu formlega velkomna. Annar nýr meðlimur bankar á dyrnar svo það er aldrei að vita nema við verðum orðin fimm á næsta kvöldi sem verður eftir próf og verkefni. Magga massaði feita pizzu og allir fengu slize
og kók. Myndin Nýtt Líf stóð fyrir sínu og voru Danni og Þór í sínu besta formi að ógleymdum Sigga majones, Víglundi verkstjóra, Axel bónusvíkingi, Ása skipstjóra og síðast en ekki síðst Maríu, sem var víst búin að sofa hjá öllum á verbúðinni, að sögn stelpnanna.
Magga lét sitt ekki eftir standa og bauð uppá gómsæta risecrispys köku í eftara. Hún hvarf á meðan slúðrið fékk að flakka.
Posted by: Jakobar//12:30 -
Miðvikudagurinn, 09 mars, 2005
 |
Meðlimir MBK Sódóma |
Annað myndbandakvöldið var haldið miðvikudaginn 19 janúar. Hrefan var hress að vanda, Magga lét sjá sig og en skildi bumbuna eftir heima og að sjálfsögðu koma videónördið með spóluna. Eftir nokkur stopp og erfiðar vangaveltur var stefnan tekinn á Nonna Bita. Bátar og franskar runnu niður á meðan klassíska fjölskyldu skemmtunin, Stella í orlofi, rann framhjá augum okkar. Stella, Mási, Silja, Goggi, Anton, Salomon Gustafson og danska kvindan héldu uppi stuðinu. En þrátt fyrir það ákvað Hrefna ekki að breyta útaf vananum og lagði sig værum blundi, ámeðan við Magga samkjöftuðum ekki og þuldum upp dialoga. Næsta kvöld áætlað fyrir páska svo nú er um að gera að ákveða mynd sem fyrst... Ég setti inn lista með væntanlegum myndum um að gera að bæta við hann!!! Vel steikt og vel piprað kvöld.
Posted by: Jakobar//19:50 -
Sunnudagurinn, 30 Janúar, 2005
 |
Pizzan góða |
Fyrsta myndbandakvöldið var haldið miðvikudaginn 19 janúar. Ég, Hrefna og Magga hittumst hjá Möggu og horfðum á snilldar ræmuna Íslenski draumurinn. Þar sem Magga hafði aldrei kynnst Tóta var ekki annað hægt en að leifa þeim að hittast áður en Magga missti allt niður um sig. Magga bakaði trylltgóða pizzu og bauð uppá ískalt kók með. Það er ekki hægt annað en að hlakka til næsta kvölds og endilega komiði með tillögur um næstu mynd. Ef þið hafið áhuga að ganga í klúbbin þá meiga áhugsamir hafa samband.
Posted by: Jakobar//22:50 -
Föstudagur, 19
Nóvember, 2004
 |
Hrefna með nýja Sódómu kortið sitt |
Annar stofnfundur Sódómu var tvinnaður inní myndakvöld hjá Möggu 8. nóvember síðastliðin. Meðlimakortum var dreift og ákveðið var að horft verður á Íslenska drauminn á fyrsta myndabandakvöldinu. Lög félagsins eru í bígerð og fundagerðir verða aðgengilegar innan skamms. Einnig eru umsóknareyðublöð og inntökupróf í vinslu. Þetta verður allt hægt að nálgast hér á vefnum. Vonandi verður þetta stór og glæsilegur myndbanda klúbbur þegar fram í horfir.
Posted by: Oceanmadness//17:50 -
Laugardagur, 06
Nóvember, 2004
Í MH veturinn '01-'02
- Upphafið, fyrsta Sódómukvöldið.
Eftir sögur Hrefnu og Möggu um mis gott val á kvikmyndum í gegnum tíðina ákvað ég að ræða við þær um kvikmyndir. Upp úr krafsinu kom svo að þær hefðu aldrei heyrt minnst á Alex, Mola og hvað þá Agga Flinka. Ég ákvað á þeirri stundu að taka þessar tvær ungu stúlkur undir minn verndarvæng. "Til að eiga einhverja von um framtíð þurfið þið að horfa á Sódómu Reykjavík." sagði ég við þær. Eftir smá karp var ákveðið að við skyldum horfa á Sódómu saman. Þar með var fyrsta Sódómu kvöld haldið í bílskúrnum heima hjá Möggu. Ekki var auðvelt að halda althygli stúlknanna á skjánum því lélegar hryllingsmyndir og annar viðbjóður var ofarlega í huga þeirra. En með áræðni og skipulagningu kláruðum við myndina og framtíðin blasti við þeim á ný.
7. júlí 2004
- Magga býður í Sódómu og pizzu.
Eftir langa bið varð annað sódómu kvöldið að veruleika. Magga bauð og við mættum. Frábær mynd, sjóðandi heit pizza og ískalt kók beið okkar við komuna. Eftir eina stóra heimatilbúna pizzu með mozzarella, ískalt kók, Alex, Mola, Mæju, Unni, Brjánsa, Ella og Agga Flinka var kvöldið fullkomnað. Hrefna dreif sig heim, Garðar fór í Diablo ógeð og ég og Magga fórum að spjalla... eða s.s. Magga fór að tala við mig. Eftir þó nokkuð langar umræður komust við að niðurstöðu um að stofna myndbanda klúbb og fara svo á Sódómu slóðir. Myndbanda klúbburinn Sódóma var s.s. stofnaður óformlega á öðru sódómakvöldinu.
01nóvember 2004
- Magga býður í myndakvöld og annar stofnfundur Sódómu á sér stað.
Allt að gerast. Afhending fyrstu félagsskírteina, heimasíða vígð hátíðlega og sýning á næstu mynd samþykkt.
Posted by: Oceanmadness//12:50 -