Föstudagurinn, 22 Júní, 2007

Erfitt að kyngja stoltinu !

Loksins þegar ég er orðin atvinnumaður í vefforritun þá hef ég ákveðið að kynja stoltinu og leggja upp laupana við þessa ágætu vefsíðu mína. Ég ætla s.s. framvegis nýta mér vinnu annara og að henda inn myndum fréttum og öðru almennu rugli á www.jakobar.wordpress.com. Ég ætla reyndar að henda upp einhverri myndasíðu sjálfur en læt gömlu síðuna standa þangað til það gerist. Breytið liknum og uppfærið bookmörk.

Posted by: Jakobar//13:10

Sunnudagurinn, 17 Júní, 2007

F**k hvað þessi maður er fyndinn!

Ég og Andrea fórum á nýju Will Ferrell myndina Blades of glory um daginn. Hver man ekki eftir meistaraverkum eins og Elf og Night at the Roxbury en þessi mynd slær öllu við. Jon Heider úr Napoleo Dynamite kemur sterkur inn og þeir mynda feiknar sterkt dúó. Mæli með þessari mynd hvar og hvenær sem er aftur og aftur.

Eitt fyndasta atriðið í myndinni...!

Posted by: Jakobar//23:30

Fimtudagurinn, 14 Júní, 2007

Myndir!

Þokkalega mikið búið að vera að gera hjá mér síðustu tvo mánuði!


Lokaverkefnissýning.
Heimsókn til Aalborg til Önnu Siggu, Friðgeirs og Ninju Tíbrá.
4 ára afmæli Emblu.
Júlía í heimsókn á efstuhæðinni.
BSc. í Tölvunarfræði.


Posted by: Jakobar//23:30

Miðvikudagurinn, 23 Maí, 2007

Back to Aalborg!

Það hlaut að koma að þessu... nokkrar myndir frá ökuferð okkar Andreu og Róberts (Ekki Andreu Róberts) um Danmörku. Það kemur meira um líf og störf síðustu vikna þegar við komum heim.







Posted by: Jakobar//21:30

Fimtudagurinn, 5 Apríl, 2007

Jakob með béi!

Í ljósi nýliðinna atburða síðustu árin fannst mér ég knúinn til að hefja upp raust mína og segja mína skoðun núna þegar ég er orðinn Jack Bauer ára gamall. Nafn mitt hefur oft verið mikil ráðgáta fyrir marga. Hvort eigi að skrifa það með béi (b) eða péi (p) vefst fyrir mörgum. Ég hef reynt mitt besta til að fræða heimskan lýðinn að það sé skrifað mér béi í mínu tilviki. Hinsvegar hef ég velt því fyrir mér hvort þetta pé vesen í fólki eigi rétt á sér en aldrei gert neitt í því að sýna fram á það. Sumir segja að það eigi frænda sem er með péi og einhverjar svona ættar sögur en aðrir krota bara óskýrt bé yfir péð í þau skipti sem ég nenni að leiðrétta það. Í eitt skipti fyrir öll ætla ég núna að sýna fram á það að það er aðeins aumingjar og dusilmeni sem láta sér detta það til hugar að skrifa Jakob með péi.




Jakob vs Jakop

1. Jakob er alþjólegt biblíu nafn og er þar skrifað með béi.

2. Á Íslandi er bara einn gaur sem heitir Jakop en um 430 sem heita Jakob.

3. Ef maður leitar á google eftir Jakop eru 83.800 niðurstöður en ef leitað er eftir Jakob eru 27.600.000 niðurstöður

Þrátt fyrir að vera trúlaus og ófermdur hef ég þó nokkra þekking á biblíunni þökk sé íslenskagrunnskólakerfinu. Þar er nefndur einn af lærisveinum Jésú og hann mun hafa borið nafnið Jakob, reyndar oftast skrifað Jacob á ensku en þrátt fyrir trade á k yfir í c stendur béið óhaggað. Allir þeir sem segja fölskyldu söguna hljóta að þekkja þennan gaur sem er fæddur 1989 og er frá Selfossi eða eru með F.O.S. syndrome, svokallað Full of Shit syndrome. Og ekki lýgur google. Í ljósi þessara staðreynda hefur engin lengur afsökun fyrir því að vera í nokkrum vafa um þetta stór mál og ég mun ekki veita nokkrum manni miskunn fyrir að gera þessi mistök aftur.

Posted by: Jakobar//20:00

Sunnudagurinn, 26 Mars, 2007

Óvissudagurinn 17. mars!






















Um síðustu helgi ákvað ég að hafa smá óvissu dag fyrir Andreu. Hún s.s. átti ekki að vita af neinu sem ég ætlaði að gera nema að við værum að fara út að borða og í leikhús á Leg um kvöldið útaf því að hún panntaði miðana. Hér koma stórar stiklur:

Morgunmatur: Pönnusteiktbrauð með steiktum ferskum tómat og steiktu beikoni ásamt örlitlum strásykri.

Fyrsti áfangastaður: Bláa Lónið í snjóbyl ásamt nuddi.

Kaffi: Fjölskylduóðalið á vatnsleysuströnd, nesti, samloka með túnfisksalati, borðuð í bílnum ásamt drykkjum á meðan hafið ólgaði.

Þriðji áfangastaður: Nammiland í Hagkaup.

Matur: Ítalía, cabonarapasta og ítölsk pizza með hvítvíni og goslausu 7-up.

Þriðji áfangastaður: Þjóðleikhúsið á leiksýninguna Leg eftir Hugleik Dagson.

Eins og ég sagði við Andreu þá var þetta yndislegasti dagur lífs míns og eins og sjá má mjög viðburðaríkur dagur en umfram allt ótrúlega skemmtilegur. Þess má geta að þennan dag vorum við Andrea búin að vera saman í 27 mánuði.

Posted by: Jakobar//23:59

Til baka
Eldri færslur