|
Veflókur hvítpjengs í Singapore
___________________
email: hannesson@gmail.com
msn: dhannesson@hotmail.com
MYNDIR
Ágúst
Tioman
Malasía-Borneo
Ýmislegt
DIPS
Ingvar Arnarsjón
Elurinn
Sæhæbbó kuti
Eirik lyrik
Magga
Herborg
Shiite
Orðabók sköpuð
Viska kláms
Júlí 2002
Ágúst 2002
September 2002
Október 2002
Nóvember 2002
Desember 2002
Febrúar 2003
Maí 2003
Janúar 2004
Febrúar 2004
Mars 2004
Apríl 2004
Maí 2004
Júní 2004
Júlí 2004
Ágúst 2004
September 2004
Október2004
Nóvember2004
|
Innlima
Innlimun: 1. so. einnig míkrópenis, þegar limurinn liggur innvortis. Notkun: Hann er innlimaður eða Hann er innlima 2. no. Kynskiptiaðgerð, þ.e. úr karli í konu. Limnum er snúið innvortis. Notkun: Hann fór í innlimun.
Spámaður: no. Barnaníðingur. Sbr. Runar Søgård; Muhammed er en forvirret pædofil
Da? Hannesson
25.5.05
|
25.5.05  |
Nýtt innlegg í skapandi umræðu
Skapabarmar: s.o. Að iðrast nætursvefns með óásjálegum, ellegar slæmum bólfélaga. M.ö.o. að barma sér yfir slæmri næturreið. Skapandi-Björn á veg og vanda.
Vænlegt er að minnast þess að orðið kollríða (munnmök, þ.e. fellatio) varð til í flugvél á leið heim úr keppnisferðalagi í Danmörku snemma vors 1997.
Da? Hannesson
26.3.05
|
26.3.05  |
Úr leyniræðunni um Hannes á 12. flokksþinginu
Það var einn kaldranalegan morguninn, er nístingslegur vindgusturinn barði á vegfarendum, að nokkrum galvöskum ungmennum varð litið inn um fitukenndar rúður kokkhússins. Þar mátti greina mjósleginn en risavaxinn unglingspilt. Hann stendur í lostafullum stellingum munaðarins andspænis íturvaxinni og karlmannslegri afgreiðslustúlkunni. Hann er með flírulegt bros á vör. Gleraugu hans klunnaleg á þessu ámátlega andliti viðkvæmra andlitsdrátta. Það glimtir í glossalegan endajaxlinn. Hann reynir að gera viðskiptasamning við kenjótta undirleita afgreiðslustúlkuna: „Fyrir heitan mat með frönskum og kokteilsósu ásamt kókglasi, máttu anda að þér suðrænum ilmi bringu minnar og fitla við lærin“. Stúlkan horfir soltnu augnaráði á karlmannlega bringuna og það fer viðkvæmur fiðringur upp vélinda hennar. „En þetta og kaffi að auki?" Augun hvíla á buxunum neðan strengs. Hann leggur þrekvaxnar varir sínar upp að eyra hennar og hvíslar hljóðlátlega: „Mig umbúðalausan?“ Hún hvíslar á móti: „Allt í lagi, þú borgar við kassann“.
Einar Már Guðmundsson um Hannes G. Sigurðsson, útskriftarrit M.T. Tirna 1975
Da? Hannesson
5.3.05
|
5.3.05  |
Veflókur impótent
Textaframleiðsla ekki lengur virk. Lókurinn eigi fær um að sprauta texta í vit almúgans.
Skapnaðarerindið er þó enn á sínum stað og eru allir hvattir til að lesa það upphátt, helst í kór með vinnufélögum eða fjölskyldu, við upphaf hvers dags. Það er lykill að gjöfulum degi.
Í stað texta þá smellir DH leðri í andlit.
Da? Hannesson
14.12.04
|
14.12.04  |
Umhverfis jörðina á 26 klukkutímum
Annað kvöld hefst fjörið. Flugáætlunin er svo fögur að ég æsist allur upp við tilhugsunina.
Swingapork - Bangkok - Helsinki - Köben - Reykjavík. Skemmtilegast verður að bíða á Kastrup í næstum 4 tíma.
Da? Hannesson
5.12.04
|
5.12.04  |
Köttíng losses
Svipljótir landamæraverðir meinuðu mér aðgöngu í flug 51 með Tiger Airways til Tælands í síðustu viku vegna skorts á vegabréfsáritunum. Tap umtalsvert í formi flugmiða og hótelbókana.
Nokkrir kostir voru þá í stöðunni, allir slæmir, en ég valdi að taka tapið á kassann og fara í staðinn í örugga ferð til Kuala Lumpur. Last minute hótelbókun á netinu gerir snauðum manni kleift að lifa hátt og pantaði ég fjórar nætur á klassahóteli í KL og lagði af stað árla morguns síðastliðinn laugardag.
En Adam var ekki lengi í Paradís og eins og sönnum ferðamönnum sæmir krækti ég mér í fuglaflensuna (eða eitthvað afbrigði af henni) í nesti. Eyddi ég því stærstum hluta þessara fjögurra nátta í svitakófi og rænuleysi á hótelherberginu. En þó er líklega hvergi betra að vera með fuglaflensuna en á 1000 stjörnu hóteli.
Eða það hélt ég að minnsta kosti.
Árum saman hef ég verið mikill áhugamaður um gufuböð og talið þau allra meina bót. Því dró ég sjálfan mig á hnakkanum niður á fjórðu hæð og iðaði í skinninu eftir að seyta eiturefnum í marmaralögðu gufubaðinu. Aðstæður litu út fyrir að vera mjög góðar og að mestu laust við kólí-gerla og hlammaði ég mér því niður í 100° heitri gufunni og euphoria hófst. Skömmu seinna settist annar maður í gufuna og hann hóf kurteislegt samtal. Ég vildi lítið með þetta hafa en svaraði stuttlega að ég væri frá Íslandi... já einmitt Ædur Gúdjonsen ofrv. En eftir nokkra stund runnu á mig tvær grímur, hér voru brögð í tafli, ekki allt með felldu. Annaðhvort var afstyrmið vændismaður að falbjóða sig eða gargandi gorri. Reiðin sauð í mér og aðeins ótti við opinbera hýðingu og geymslu í dýflissu árum saman kom í veg fyrir að ég steikti pjenginn á kvekendinu á saunu-steinunum.
Da? Hannesson
2.12.04
|
2.12.04  |
Storknað Blóð og Blóð hf.
Al Gore og félagi hans David Blood, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Goldman Sachs, voru að stofna fyrirtæki saman.
Þeir hljóta að vera til í að koma á blóðhátíð í eyjum 2005.
Da? Hannesson
20.11.04
|
20.11.04  |
Þvagsýrugigt?
Nú hef ég fengið mig fullsaddan af grískum bókstöfum og japönskum og brúnleitum! hreyfiferlum, sem betur fer hafði ég smá þekkingu á þessum fræðum fyrir og hjálpaði þar glósumiðinn frá 2002 (hlekkur hér).
Þar sem þessum horror er lokið hefst nú skipulögð hryðjuverkastarfsemi á helstu líffærum; þar ber hæst lifrina og brisið. Ég hef hugsað mér að beita skæruhernaði, s.s. að ráðast að þeim þegar síst skyldi; má þar nefna snemm-morguns innbyrðing, neysla sterks vínanda við þorsta í kjölfar áreynslu, eða með því að blekkja jafnt líffæri og undirmeðvitund með óvenjulegri áfengisblöndu svo sem captain morgan í instant núðlur!
Skæruliðar eru vongóðir um að sigur vinnist í þessu stríði. Takmarkið er eitt eða fleiri af þessum eftirsóttu einkennum: fitulifur eða jafnvel skorpulifur, járnskortur, hjartsláttaróregla, háþrýstingur, kæfisvefn og/eða briskirtilsbólga (í kjölfarið sykursýki). Vitanlega eru einkennin vinsæl en hins vegar felst fullnaðarsigur í þvagsýrugigt. Skærurnar munu fara fram á faraldsfæti og því væri rós í hnappagatið á ná tökum á snert af blóðkreppusótt, mænusótt eða jafnvel stífkrampa sem væri hressandi all.
Nefna þarf tvö önnur mál.
Ég skil ekki tyggjóbannið hér því engin nauðsyn er á að banna vöru sem ekki er hægt að geyma. Skýring, það er svo heitt í herberginu mínu að tyggjókartonin tvö sem Hannes og Hjördís gáfu mér eru bráðnuð (engin sól kom þar nærri)!
Uppáhaldsstjórnmálamaðurinn (vá Tryggvi hringdi í mig og sagði mér að það væru 27 bókstafir í orðinu) í dag er valmennið Árni Þór Sigurðsson. Hann er svo vel máli farinn, aðlaðandi, vel gefinn, sviphreinn og skemmtilegur að maður getur ekki annað en dáðst að honum þegar hann tilkynnir okkur um svigrúmsrýmkanir borgarinnar. Aðdáðun vekur að rýmkunaraðgerðir koma allar fram í sviðsljósið á sama tíma, þmt gjaldskrárbreyting Orkuveitunnar sem vitanlega þarf að koma til vegna viðbúins kuldakasts í vor. Með þessum ráðahag gefst fólki tækifæri á að leggja rýmkunarpakkann vel á minnið og verður þar með efst í huga kjósenda eftir 18 mánuði.
Áfram R-listinn.
Da? Hannesson
19.11.04
|
19.11.04  |
ridnyM
Skreytti vef-lókinn með nokkrum myndum sem teknar hafa verið við ýmis tækifæri að undanförnu.
Da? Hannesson
10.11.04
|
10.11.04  |
Svolítill heiladoði í kjölfar snilldar síðustu færslu
Hlutabréfamarkaðurinn í BNA fylgdi skoðanakönnunum nánast línulega á undanförnum dögum. Þegar Bush var líklegur skreið markaðurinn upp á við, en þegar Kerry átti séns, t.d. þegar fréttir frá Ohio voru tvísýnar, tók markaðurinn dýfu. Því þykir mér ekki einkennilegt að kanarnir hafi kosið runnann en af hverju austurströndin kaus hann þykir mér alleinnkennilegt, þó ég viti að NY er demókratabæli, því að þar eru peningarnir!
Skemmtileg statístík - Flugfélög standa illa þessa dagana. Olíuverð sligar flugfélögin og því hafa mörg flugfélög tekið til þess ráðs að leggja olíuverðs-premiu á verðmiða. Þumalputtaregla er að þegar olíuverð stendur í 32 dollurum þá er iðnaðurinn á sléttu, en hver dollarshækkun umfram þá upphæð leiðir til $1 milljarðs taps fyrir iðnaðinn. Þ.e. Olíuverð í $50 þýðir $18 milljarða tap fyrir iðnaðinn. Sem er að mínu mati (shit er hægt að taka mark á því?) uþb 10% af ársveltu bandarísku flugfélaganna á síðasta ári.
Da? Hannesson
5.11.04
|
5.11.04  |
|
|